4 Febrúar 2015 08:09
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku bæði á og í nágreni Hólmavíkur, fyrra óhappið varð með þeim hætti að snjóruðningstæki á Þröskuldum, Djúpvegi nr. 61, lenti út fyrir veg, valt ekki en talsverðar skemmdir á tækinu. Hitt óhappið var minniháttar á bifreiðastæði á Hólmavík. .
Tveir ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, annar í Óshlíðargöngum og hinn innan bæjar á Ísafirði.
Eitt minniháttar fíkniefnamál kom upp í vikunni.
Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð s.l. nótt. Flóðið hefur að líkindum fallið síðla nætur og eftir að aðstæður voru kannaðar nánar var vegurinn opnaður um kl. 08:30 í morgun.
Víða í umdæminu væru þorrablót og fl. skemmtanir um liðna helgi og gekk það vel fyrir sig og án teljandi afskipta lögreglu.