25 Nóvember 2024 11:48

Það er ýmislegt sem verður á vegi okkar á vaktinni líkt og sjá má í stuttu myndbandi frá því í síðustu viku. Þá voru lögreglumenn á leið um Sæbraut í Reykjavík þegar skyndilega birtist vígahnöttur á himni. Það var tilkomumikil sjón og eftirminnileg og því við hæfi að leita skýringa á fyrirbærinu hjá Sævari Helga Bragasyni, betur þekktur undir nafninu Stjörnu-Sævar, og auðvitað var hann með svar á reiðum höndum.

„Að kvöldi mánudagsins 18. nóvember, kl. 21:23 sprakk vígahnöttur yfir hafinu sunnan Íslands. Mörg vitni urðu að vígahnettinum enda birtist skær ljósblossi þegar hann sprakk, líkt og um eldingu væri að ræða.

Vígahnettir eru björt loftsteinahröp sem verða skærari en reikistjarnan Venus. Þeir eru oftast fremur litlir, á stærð við ber eða lítinn ávöxt á að giska en stundum talsvert stærri. Steinarnir koma á ógnarhraða inn í andrúmsloft Jarðar (meira en 11 km/s) og ryðja lofti undan sér sem byrjar að glóa. Steinninn stenst ekki álagið og springur, oftast nær í um það bil 80 km hæð eða svo.

Miðað við hæð vígahnattarins yfir sjóndeildarhring hefur hann sennilega sprungið í um 300 km fjarlægð frá Íslandi. Engin slóð varð eftir svo líklegast hefur hann brunnið alveg upp, eða í besta falli agnarsmá brot fallið í hafið.“