1 Ágúst 2023 10:50

Nú þegar mesta ferðahelgi ársins er framundan er ekki úr vegi að minna á þessi skilaboð sem fjalla um afbrotavarnir og hvernig best er að koma í veg fyrir innbrot á heimili. Lögreglan hefur ítrekað nefnt ýmsar leiðir í þeim efnum, en í meðfylgjandi myndbandi er mikilvægi þess að hafa traustar hurðarlæsingar, útiljós með hreyfiskynjara, traustar gluggalæsingar og inniljós með tímastillir haldið á lofti. Þá er nágrannavarsla einnig mjög mikilvæg. Ef þið verið vör við grunsamlegar mannaferðir ekki hika við að hringja í lögreglu í síma 112.