28 Desember 2012 12:00
Snjóalög og veðurspá fyrir Vestfirði er með þeim hætti að hús á ákveðnum svæðum hafa verið
rýmd með öryggi íbúa að leiðarljósi. Þannig hafa verið rýmd nokkur hús á Patreksfirði og á
Ísafirði, auk nokkurra sveitarbæja í Dýrafirði, Önundarfirði og Hnífsdal.
Þá var veginum um Súðavíkurhlíð lokað nú síðdegis vegna snjóflóðahættu. Kl.18:00 í dag mun
ákveðnum vegaköflum verða lokað fyrir allri umferð af sömu ástæðu. En þetta eru Eyrarhlíð,
Suðureyrarvegur, Flateyrarvegur og Gemlufallsheiði.
Vegfarendum sem staddir eru í Súðavík er bent á þjónustumiðstöð sem staðsett er í Víkurbúðinni í
Súðavík.
Vegir þeir sem lokaðir hafa verið munu ekki verða opnaðir í dag. Opnun mun ráðast af veðri
næsta sólarhringinn. Vegfarendum er bent á upplýsingasíma Vegagerðarinnar, 1777, ef óskað er
nánari upplýsinga um færð og veður.