13 Desember 2023 14:43
Hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er lögð rík áhersla á að skapa starfsumhverfi og menningu þar sem starfsfólki líður vel og allir njóti sömu réttinda og friðhelgi. Mál á borð við einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi (EKKO mál) auk mála sem varða ósæmilega háttsemi koma vissulega upp á vinnustaðnum en eru ekki umborin undir neinum kringumstæðum.
Á síðastliðnu ári hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haft til meðferðar fimm mál er varðar fyrrgreinda háttsemi. Í öllum tilvikum var brugðist við í samræmi við reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Einnig var horft til laga um vinnuumhverfi og vinnuvernd og ákvæða starfsmannalaga. Í einhverjum tilfellum var talin ástæða til að kalla til utanaðkomandi sérfræðinga til að leggja mat á málin. Niðurstöður þeirra eru ávallt kynntar málsaðilum og er fylgt eftir með stuðningi stjórnenda í formi samtala og aðgengi að utanaðkomandi sérfræðistuðningi ef það á við.
Það er mannauðsstjóri embættisins, sem einnig situr í framkvæmdarstjórn embættisins, sem hefur forgöngu um vinnslu starfsmannamála og það er síðan lögreglustjóri sem tekur lokaákvörðun þegar skoðun máls er að fullu lokið. Niðurstaða slíkra mála getur leitt til beitingar agaviðurlaga á grundvelli starfsmannalaga, tilflutnings í starfi eða annarra úrræða. Vert er að taka fram að í starfsmannalögum telst áminning vera meðal þyngstu agaviðurlaga sem hægt er að beita opinberan starfsmann. Tvær áminningar fyrir samskonar brot leiða til uppsagnar.
Þrátt fyrir að embættið geti ekki tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna þá er fyrrgreind háttsemi ávallt litin alvarlegum augum og málsmeðferðin eftir því. Það er enn fremur í samræmi við yfirlýsta stefnu LRH um virðingu í samskiptum og vinnuumhverfi sem sé laust við einelti, áreitni og ofbeldi af öllu tagi.
Undanfarið hefur átt sér stað endurskoðun á stefnu og verklagi innan embættisins og meðal niðurstaðna úr þeirri vinnu er að starfsfólk fái aukna fræðslu um mörk í samskiptum og hvaða afleiðingar það getur haft ef farið er yfir þau. Gildandi stefnur og ferlar sem fylgt er í slíkum málum eru einnig ávallt aðgengilegir og kynntir starfsfólki.