26 Febrúar 2019 14:00
Af stöðufundi kl. 13:00
Um 60 björgunarsveitarmenn voru við leit í morgun á og við Ölfusá að karlmanni fæddum 1968 búsettum á Selfossi sem talið er að hafi ekið bifreið sinni í ána um kl. 22:00 í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að um 100 manns verði við leitina eftir hádegið og að leitað verði fram í myrkur. Leitarsvæðið verður allt leitað tvisvar í dag. Veður fer batnandi en hvasst var í morgun og mikil rigning. Íshröngl er í ánni, sem er gruggug og vatn að aukast í henni og þarf að hafa það í huga við siglingar og leit.
Hafi viðkomandi ekki fundist í dag verður haldið áfram með leit á morgun.