25 Mars 2021 10:43
Í dag er birt áhættumat ríkislögreglustjóra 2021 vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka. Um ræðir uppfært áhættumat frá árinu 2019 í samræmi við 1. mgr. 4. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018. Samkvæmt téðu lagaákvæði ber embætti ríkislögreglustjóra að vinna áhættumat sem inniheldur greiningu og mat á hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hér á landi og leiðir til að draga úr metinni áhættu sem skal uppfært á tveggja ára fresti eða oftar ef tilefni er til.
Áhættumatið felur í sér, líkt og eldra áhættumat, ítarlega og heildstæða greiningu á fyrirliggjandi áhættu af peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á þeim mörkuðum og starfsemi sem helst er talið að geti verið útsett fyrir slíkri áhættu á Íslandi.
Áhættumatið er forsenda þess að unnt sé að leggja mat á hvort fullnægjandi varnir séu til staðar gagnvart peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, svo og til hvaða aðgerða þurfi að grípa reynist svo ekki vera. Lagt er upp með að áhættumatið muni nýtast fjölmörgum sem hagsmuna eiga að gæta af málaflokknum, t.d. stjórnvöldum og eftirlitsaðilum, sem og þeim sem eru tilkynningarskyldir samkvæmt lögum nr. 140/2018, en gert er ráð fyrir því að þeir hafi áhættumat ríkislögreglustjóra til hliðsjónar við gerð eigin áhættumats á rekstri sínum og viðskiptum.
Áhættumatið var unnið á faglegum og hlutlægum grundvelli og samkvæmt þeirri aðferðafræði sem byggt er á í leiðbeiningum alþjóðlega aðgerðarhópsins Financial Action Task Force (FATF) sem er leiðandi á þessu sviði á heimsvísu. Vinna við áhættumatið fór fram í víðtæku og nánu samráði við alla þá sem aðkomu eiga að málaflokknum og byggir á umfangsmikilli gagna- og upplýsingaöflun sem ráðist var í af því tilefni. Áhættumatið er þáttur í því að vinna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Áhættumatið má nálgast hér.