17 Október 2021 16:34
Fundur var haldinn í dag með Veðurstofu, almannavörnum og Múlaþingi vegna úrkomuspár á Austurlandi í nótt og fram á þriðjudag. Næstu tvo sólarhringa má búast við úrkomu á Austfjörðum. Gefin hefur verið út úrkomu- og skriðuviðvörun á sunnanverðum Austfjörðum.
Vindaspá gerir ráð fyrir SA-A átt 8-12 m/s. Þessi vindátt skapar úrkomuskugga á Seyðisfirði. Því er ekki talin ástæða til rýmingar húsa.
Hryggurinn milli skriðusársins og Búðarár er enn á hreyfingu þó hægt hafi á henni. Einn spegill (nr. 25) sýnir að stykkið sem hann stendur á hafi hrokkið til um 15-20 mm í gærkvöldi en sú hreyfing hefur ekki náð til annarra spegla á svæðinu.
Úrkoma næstu daga kann að verða til þess að einhver hluti hryggsins fari af stað. Sem fyrr er ekki gert ráð fyrir að hann fari allur í einu sökum þess hversu sprunginn hann er og gliðnaður. Útreikningar sýna að allar líkur eru á að varnargarðar og safnþró leiði efnið til sjávar og án þess að valda tjóni á mannvirkjum, jafnvel þó hryggurinn fari allur í einu.
Vel er fylgst með mælum í hlíðum ofan Seyðisfjarðar og viðeigandi ráðstafanir gerðar þyki ástæða til.
Engar hreyfingar hafa mælst í hlíðum ofan Seyðisfjarðar utan þeirrar er mælst hefur í hryggnum.
Áfram verði aðgæsla vegna umferðar á göngustígum meðfram Búðará og annars staðar þar sem varnargarðar beina skriðustraumum.
Enn er í gildi óvissustig almannavarna á Seyðisfirði.
Minnt er á Hjálparsíma Rauða krossins 1717.
- Á bloggsíðu Veðurstofu Íslands er hægt að skoða staðsetningu svæðisins er um ræðir og hreyfingar á speglum, auk þess sem þar má fá ítarlegri upplýsingar um stöðu mála.
- Einnig er á Veðurstofu Íslands tilkynningarborði þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um vöktun og fleira.