10 Maí 2023 11:46

Upplýsingafundur v/götulokana í tengslum við leiðtogafundinn í Hörpu 16. og 17. maí og áhrif þess á íbúa og atvinnustarfsemi í miðborginni verður haldinn í Kolaportinu, Tryggvagötu í Reykjavík, kl. 17 í dag. Fulltrúar frá forsætisráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, lögreglunni og Reykjavíkurborg verða á fundinum.

Allri vörulosun innan lokaða svæðisins skal vera lokið fyrir kl. 11.00 mánudaginn 15. maí og verður ekki hægt að fá afhentar vörur með bíl innan svæðisins fyrr en eftir kl. 18.00 miðvikudaginn 17. maí.

Ákveðið hefur verið að rýmka þann tíma sem má afhenda vörur í nálægð við lokaða svæðið, á Laugavegi og Skólavörðustíg, til kl. 18 mánudaginn 15. maí. Þess vegna er mælst til að koma þeim skilaboðum til birgja að byrja að afhenda vörur í Kvosinni að morgni 15. maí. Vörulosunartíminn föstudaginn 19. maí hefur jafnframt verið rýmkaður til kl. 18.00.

Ef þörf er á aðfangasendingum inn á svæðið á meðan á lokununum stendur bendum við á að umferð fótgangandi er leyfð og möguleikinn á að nota trillur eða vagna fyrir hendi.

Íbúar sem eiga lögheimili og bílastæði innan svæðisins geta haft samband á infodep@utn.is

Íbúum innan lokunarsvæðis er einnig bent á þjónustusímann 411 11 11, vefspjall og ábendingavef Reykjavíkurborgar.