22 Desember 2024 11:02
Búast má við mikilli umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu á Þorláksmessu og aðfangadag, en kirkjugarðarnir eru jafnframt opnir og aðgengilegir allan sólarhringinn yfir hátíðirnar. Lögreglan mun fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð á aðfangadag og greiða fyrir umferð eins og hægt er. Það er kalt í veðri og því mikilvægt að klæða sig vel þegar farið er að leiðum ástvina. Og hafa líka í huga að víða er snjór og færðin er því ekki alls staðar með besta móti.
Vakin er sérstök athygli á því að Fossvogskirkjugarður er lokaður allri bílaumferð á aðfangadag frá kl. 11-14 vegna mikils fjölda gangandi vegfarenda og slysahættu. Ökumönnum er bent á bílastæði við Fossvogskirkju, Klettaskóla, Suðurhlíð og Vesturhlíð.
Aðkoma að Gufuneskirkjugarði verður eingöngu frá Hallsvegi. Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma stýrir umferðinni inni í kirkjugarðinum og verður um einskonar hringakstur að ræða. Farið er út úr Gufuneskirkjugarði norðanmegin og inn á Borgaveg. Ökumenn eru beðnir um að aka Borgaveg í vestur og þaðan um Strandveg. Með þessu móti minnkar álagið á Víkurveg og Hallsveg og greiðir fyrir umferð þeirra sem eru að koma í kirkjugarðinn.
Sem fyrr hvetur lögreglan ökumenn til að aka varlega og sýna tillitssemi í umferðinni.