5 Janúar 2024 14:07

Jólin eru senn á enda en þrettándinn er á morgun, laugardag. Eftir hann er almenn notkun skotelda ekki leyfð og rétt að ítreka það. Sömuleiðis er ástæða til að minna á að meðferð þeirra er alltaf bönnuð frá kl. 22 til kl. 10 daginn eftir (nýársnótt auðvitað undanskilin) en það virðist vefjast fyrir mörgum. Nokkuð hefur verið kvartað undan hávaða frá skoteldum seint á kvöldin og nóttunni og eru „skotglaðir“ beðnir um að sýna tillitssemi og virða reglur um skotelda.

Það er líka ítrekað að óheimilt er að breyta á nokkurn hátt skoteldi þannig að hann hljóti aðra eiginleika en framleiðandi hans ætlaðist til. Við meðferð og vörslu skotelda skal ítrustu varúðar gætt og ætíð farið eftir skráðum leiðbeiningum. Við brennu og í næsta nágrenni við hana er öll meðferð flugelda og annarra skotelda sem hætta stafar af vegna ferils þeirra eftir tendrun bönnuð. Þar er aðeins leyfilegt að nota stjörnuljós og blys, þó ekki skotblys.

Sem fyrr hvetur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu öll til að nota þar til gerð hlífðargleraugu þegar flugeldar, bálkestir og brennur eru annars vegar.