14 Júní 2024 15:09

Tveir karlar og ein kona hafa verið úrskurðuð í tólf vikna farbann að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en fólkið hafði áður setið í gæsluvarðhaldi frá því í mars. Þremenningarnir voru þá handteknir í kjölfar umfangsmikilla aðgerða á höfuðborgarsvæðinu og víðar, en tilefni þeirra var rökstuddur grunur um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og grunur um skipulagða brotastarfsemi.

Rannsókn málsins hefur verið mjög viðamikil, en framvinda hennar undanfarnar vikur hefur gert það að verkum að brýnir rannsóknarhagsmunir eru ekki lengur fyrir hendi, að mati embættisins, til að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds.