29 Nóvember 2022 07:00
- 12% aukning tilkynninga um heimilisofbeldi og ágreining milli ára.
- Mál er varða ofbeldi foreldris í garð barns hafa nær tvöfaldast.
- Fjöldi nálgunarbanna ekki í takt við fjölgun mála.
Lögreglan á landsvísu fékk 1.787 tilkynningar um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila fyrstu níu mánuði ársins 2022. Jafngildir það að meðaltali tæplega 7 slíkum tilkynningum á dag eða 198 tilkynningum á mánuði. Um er að ræða tæplega 12% aukningu samanborið við síðustu þrjú ár þar á undan og hefur fjöldi tilkynninga til lögreglunnar um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila aldrei verið meiri, ef litið er til sama tímabils síðustu sjö ára.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um heimilisofbeldi. Þar er að finna helstu tölur er snúa að heimilisofbeldismálum og ágreiningsmálum milli skyldra eða tengdra einstaklinga sem koma á borð lögreglu. Þegar eingöngu er litið til heimilisofbeldismála, þ.e. tilvika þar sem grunur er um brot á borð við líkamsárásir, hótanir eða eignaspjöll, þá voru tilvikin 832 eða 2,5% fleiri en yfir sama tímabil 2021 og rúmlega 4% fleiri en árið 2020 í miðjum heimsfaraldri. Tilkynningum um ágreining milli skyldra/tengdra aðila voru 955 talsins, eða 25% fleiri en yfir sama tíma í fyrra.
Í 78% tilvika heimilisofbeldis var árásaraðili karl og 67% tilvika var brotaþoli kona. Þegar horft er til tilvika heimilisofbeldis þegar um er að ræða ofbeldi milli maka eða fyrrum maka er 80% árásaraðila karlar og 78% brotaþola eru konur.
Fjölgun mála er varðar ofbeldi foreldra gegn börnum
Í verklagsreglum lögreglunnar er heimilisofbeldi skilgreint sem ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir hendi einhvers nákomins og er ekki tengt því hvar brot á sér stað. Ef barn er á vettvangi eða er með skráð lögheimili á vettvangi heimilisofbeldisútkalls er barnavernd upplýst og óskað eftir aðkomu þeirra. Tilvik eru skráð sem ágreiningur milli skyldra og tengdra þegar ekki leikur grunur á broti sem beinist að þolanda.
Flest tilvik heimilisofbeldis, eða 64% mála voru af hendi maka eða fyrrverandi maka. Málum af hendi maka eða fyrrverandi maka fækkar þó eilítið hlutfallslega og eru mál er varðar heimilisofbeldi vegna fjölskyldutengsla orðin um 30% heimilisofbeldismála. Mál er varða ofbeldi foreldris í garð barns voru að meðaltali um 6-7 á mánuði árin 2016-2020, fjölgaði aðeins í fyrra, en voru að meðaltali 11 á mánuði í ár. Þegar horft er til aldurs brotaþola er varðar heimilisofbeldi vegna fjölskyldutengsla eru um 30% þeirra undir 18 ára. Um 12% árásaraðila í slíkum málum eru undir 18 ára.
Fjöldi nálgunarbanna ekki í takt við fjölgun mála
Fyrsta úttekt á eftirfylgni Íslands á Istanbúlsamningum, samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi hefur verið birt. Þar er meðal annars bent á mikilvægi nálgunarbanns og brottvísana til að vernda brotaþola heimilisofbeldis, þ.m.t. börn. Beiðnir um nálgunarbann á Íslandi voru 91 og hefur þeim ekki fjölgað í takt við fjölgun heimilisofbeldismála. Sjaldgæft er að nálgunarbann sé sett vegna barna hér á landi.
Úttektin bendir einnig á nauðsyn þess að setja upp kerfi til að yfirfara manndrápsmál á heimilum til að koma í veg fyrir þau í framtíðinni og leysa kerfislega annmarka á mati á áhættu. Ríkislögreglustjóri hefur haft manndrápsmál á árunum 1999-2020 til skoðunar. Um 37% manndrápsmála á þessu tímabili eru heimilisofbeldismál, og rétt yfir fimmtungur þar sem um var að ræða maka eða fyrrverandi maka. Kanna þarf vel þann möguleika að leggja heildstætt mat á þau mál sem hafa komið upp og tengjast heimilisofbeldi. Við þá vinnu þyrfti að horfa til m.a. sambærilegrar vinnu breskra stjórnvalda (Domestic homicide review – GOV.UK (www.gov.uk)) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
——–
Istanbúlsamningurinn kveður á að ríkjum beri skylda til að birta tölfræði um kynbundin brot og hefur dómsmálaráðherra lagt áherslu á það í samræmi við aukna vitundarvakningu um kynbundið ofbeldi og kynferðisbrot. Er þessi skýrsla liður í því mikilvæga verkefni.
Upplýsingar eru aðgengilegar á síðu lögreglunnar um tölfræði vegna kynbundins ofbeldis.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar H. Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra gunnarhg@logreglan.is