24 Júní 2024 10:08

Embætti ríkislögreglustjóra hefur birt nýja skýrslu um ofbeldi barna, stöðuna og áskoranir því tengdu eins og það birtist í gögnum lögreglu. Í skýrslunni er leitast við að varpa ljósi á ofbeldisbrot barna sem stunda ofbeldis- og áhættuhegðun með neikvæðum afleiðingum á velferð þeirra og þroska. Farið er yfir tölfræðigögn lögreglu sem tengjast ofbeldi ungmenna auk þess sem rýnt er í önnur útgefin gögn og birtingarmyndir á hagnýtingu barna og ungmenna í skipulagðri brotastarfsemi skoðuð.

Flest börn á Íslandi búa við jákvæðar og uppbyggilegar aðstæður og taka virkan þátt í tómstundum, íþróttum og félagsstarfi sem eykur lífsgæði þeirra og framtíðarmöguleika.

Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:

  • Heilt yfir hefur ofbeldisbrotum ungmenna ekki fjölgað frá árinu 2007
  • Tilkynningum um alvarlegum ofbeldisbrotum hefur fjölgað og hafa þau aldrei verið fleiri
  • Tilkynningum um ofbeldisbrot hjá aldurshópnum 13 til 15 ára hefur fjölgað frá 2007
  • Fjöldi ungmenna sem fremja brot hefur hlutfallslega ekki fjölgað en fleiri fremja ítrekuð ofbeldisbrot
  • Gögn lögreglu benda til þess að börn og ungmenni séu í félagahóp með hópum og einstaklingum í skipulagðri brotastarfsemi þar sem ólögleg starfsemi fer fram

Skýrsluna í heild sinni má lesa hér.

Nánari upplýsingar veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í síma 444-2570 eða helena.sturludottir@logreglan.is