14 September 2021 16:54
Borið hefur á því að færri skila sér í sýnatökur undanfarið. Aðgerðarstjórn vill hvetja alla sem finna til einkenna að skrá sig í sýnatöku og halda sig heima þangað til niðurstaðan liggur fyrir. Með því takmörkum við hættuna á smiti.
Hlekkir til að panta COVID-19 próf og fá viðeigandi strikamerki (upplýsingar á vef Landlæknis). Ef þú ert:
- með einkenni sjúkdóms (PCR próf): https://www.heilsuvera.is/ (hringja á stöð ef ekki með rafræn skilríki)
- að skrá þig í smitgát (hraðpróf): https://smitgat.covid.is/
- að ferðast til Íslands (PCR og hraðpróf): https://heimkoma.covid.is/
- að ferðast frá Íslandi (PCR próf og hraðpróf): https://travel.covid.is/is/
- að fara á viðburð þar sem krafist er neikvæðs hraðprófs: https://www.heilsuvera.is/ (eða https://hradprof.covid.is/ )
Fyrirhugaðar er breytingar á sóttvarnareglum og munu þær breytingar taka gildi á miðnætti í kvöld 14. september. Aðgerðastjórn vill hvetja einstaklinga sem og þá sem ætla að halda samkomur að kynna sér reglurnar og með því móti getum við haldið áfram að fara eftir settum reglum, sýnum aðgát eins og við höfum gert svo vel hingað til og verum þolinmóð.
Við höfum til þessa í sameiningu komið okkur á þann stað sem við erum á í dag – höldum því endilega áfram.