28 Maí 2019 11:24
Meginniðurstaða meðfylgjandi skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra er sú að áhætta vegna helstu brotaflokka skipulagðrar glæpastarfsemi á Íslandi fari enn vaxandi. Samkvæmt áhættulíkani löggæsluáætlunar er niðurstaðan „gífurleg áhætta“ við mat á skipulagðri glæpastarfsemi.
Þessi niðurstaða er í samræmi við þá sem greiningardeild ríkislögreglustjóra birti í skýrslu um skipulagða glæpastarfsemi árið 2017 þar sem sagði m.a:
„Að öllu þessu virtu verður sú ályktun dregin að núverandi aðstæður séu, að öllu óbreyttu, ekki til þess fallnar að hamla gegn skipulagðri brotastarfsemi í landinu.“ … „Að framangreindu má ljóst vera að dregið hafi úr getu lögreglu til að sinna mörgum þeirra málaflokka sem falla undir hugtakið „skipulögð glæpastarfsemi“.“
Líkan löggæsluáætlunar kveður á um fjögur áhættustig. Þau eru: lítil áhætta, möguleg áhætta, mjög mikil áhætta og gífurleg áhætta. Þeim er lýst eftir alvarleika sem grænu, gulu, rauðu og svörtu.
Allir fimm brotaflokkar sem fjallað er um í skýrslunni hafna í rauðu eða svörtu þrepi.
Hafa ber í huga að matið lýsir þeirri áhættu sem lögregla telur að skipulögð glæpastarfsemi valdi. Það felur ekki í sér heildareinkunn fyrir öryggisstigið í landinu. Ísland telst enn sem fyrr afar öruggt samfélag í alþjóðlegum samanburði. Á hinn bóginn telur greiningardeild ríkislögreglustjóra það skyldu sína að benda á þróun sem kann að breyta þeirri stöðu. Með sama hætti er mikilvægt að upplýsa almenning um þetta stöðumat.
Niðurstöður skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra eru í samræmi við það mat Evrópulögreglunnar (Europol) frá í aprílmánuði 2019 að skipulögð glæpastarfsemi sé helsta ógnin við öryggi ríkja álfunnar.
Skýrsluna má nálgast hér.