2 Nóvember 2023 11:37

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú skotárás sem átti sér stað í Úlfarsárdal í Reykjavík í nótt, en tilkynning um málið barst lögreglu kl. 4.54. Þar var skotið á karlmann við hús í hverfinu og var hann fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Líðan mannsins er eftir atvikum, en hann er ekki í lífshættu. Árásarmaðurinn fór af vettvangi og er hans leitað. Rannsóknin er á frumstigi og því er ekki með öllu ljóst hvað bjó að baki árásinni, en grunur er um að hún tengist útistöðum tveggja hópa. Fyrir liggur að nokkrum skotum var hleypt af á vettvangi og hafnaði eitt þeirra í manninum eins og áður sagði. Annað skot hafnaði enn fremur í íbúð fólks, sem er með öllu ótengt málinu. 

Vegna málsins biðlar lögregla til bæði íbúa og forráðamanna fyrirtækja í Úlfarsárdal og Grafarholti að athuga með myndefni í öryggis- og eftirlitsmyndavélum á svæðinu og koma því til lögreglu ef svo ber undir. Um er að ræða tímann frá miðnætti í gærkvöld og til klukkan sjö i morgun, en í þágu rannsóknarinnar er verið að leita upplýsinga um grunsamlegar mannaferðir. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og embætti ríkislögreglustjóra eru með mikinn viðbúnað vegna málsins og svo verður áfram, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.