1 Júlí 2024 16:22

Talsvert var um hraðakstur á höfuborgarsvæðinu um helgina og eiga margir ökumenn væna sekt yfir höfði sér vegna þessa. Hinir brotlegu voru á ýmsum aldri, eða allt frá því að vera 17 ára með nokkurra daga gamalt ökuskírteini og yfir í að vera á sjötugsaldri með áralanga reynslu af akstri og ættu því að vita betur. Aðspurðir um hraðakstur grípa ökumenn gjarnan til ýmissa afsakana og segjast oft hafa verið of seinir á leiðinni eitthvað, t.d. í vinnuna eins var tilfellið hjá einum ökuþórnum um helgina. Einn sem var stöðvaður fyrir hraðakstur að þessu sinni var með radarvara í bílnum og var svekktur með að radarvarinn brást  honum!

Grófasta hraðakstursbrotið um helgina var framið á Vesturlandsvegi í Reykjavík, á móts við Korputorg, en þar mældust tvær bifreiðar á 168 km hraða. Ökumennirnir, karlar um tvítugt, voru þar í „kappakstri“ en slíkur var hraðinn að þeir sprengdu sektarskalann. Fyrir þennan ofsaakastur eiga ökumennirnir nú yfir höfði sér ákæru.