18 Ágúst 2023 16:55

Nú þegar Menningarnótt er fram undan á morgun, laugardaginn 19. ágúst, eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga. Lögreglan vill t.d. sérstaklega minna vegfarendur á að virða þær lokanir sem verða settar upp á hátíðinni og fara eftir leiðbeiningum þeirra sem verða við umferðarlokanir.

Enn og aftur er fólk hvatt til að nýta sér strætó og hinir, sem ætla að nota einkabílinn, til að leggja löglega. Almennt fargjald gildir í strætó á höfuðborgarsvæðinu á Menningarnótt, en frítt far er eftir flugeldasýningu og það ættu gestir á hátíðinni endilega að nýta sér. Jafnframt verður strætó með skutlþjónustu, sem ekur frá Laugardalshöll um Borgartún og Hlemm að Hallgrímskirkju og til baka. Strætóskutlan, það er frítt í hana, verður á ferðinni fram yfir miðnætti, eða til kl. 1.

Lögreglan vill enn fremur brýna það sérstaklega fyrir foreldrum að skilja börn sín ekki eftir í miðbænum þegar dagskránni lýkur með flugeldasýningu annað kvöld. Lögreglan mun taka hart á drykkju unglinga og vonast eftir góðri liðveislu foreldra í því. Börn yngri en 16 ára verða færð í athvarf fyrir ungmenni séu þau úti eftir lögboðinn útivistartíma samkvæmt barnaverndarlögum svo og þau ungmenni yngri en 18 ára, sem eru undir áhrifum áfengis og/eða annarra vímugjafa.

Minnum á þjónustusíma Reykjavíkurborgar, 411 1111, en hann verður opinn á Menningarnótt frá kl. 8.30 – 23.

Venju samkvæmt verður lögreglan með töluverðan viðbúnað á Menningarnótt, en vakin er sérstök athygli á því að samfélagslöggur verða í Hljómskálagarðinum frá kl. 14-18. Þær verða í tjaldi rétt sunnan við Hljómskálann og er fólk hvatt til að líta þar við. Með þeim verður enn fremur lögreglumaður í umferðardeild, ásamt lögreglubifhjóli, og er um að gera að heilsa upp á hann í leiðinni og skoða bifhjólið!

Góða skemmtun á morgun – njótum saman sem fjölskylda og verum góðar fyrirmyndir. Hlökkum til að eiga frábæra Menningarnótt saman.

Samfélagslöggurnar verða í Hljómskálagarðinum frá kl. 14-18.