8 Apríl 2020 10:56
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú andlát karlmanns á þrítugsaldri. Maðurinn fannst mikið slasaður við hús í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt og var fluttur á slysadeild. Hann lést svo á Landspítalanum um miðjan dag í gær. Rannsókn lögreglu beinist m.a. að því með hvaða hætti maðurinn féll fram af húsinu.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.