27 September 2023 15:15
Kona um fertugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. október á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á sextugsaldri í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni um síðustu helgi.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.