13 Júlí 2015 14:20
Fjögur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku, þann 7. júlí var ekið á ljósastaur á Hólmavík, ekki um mikið tjón að ræða. 9 júlí var ekið á ljósastaur innan bæjar á Ísafirði, heldur ekki mikið tjón á ökutæki. 11. júlí urðu tvö óhöpp það fyrra aðfaranótt 11, í Bolungarvík þar hafnaði bifreið út fyrir veg, ökumaður fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar, um minni háttar meiðsl var að ræða. Þann sama dag varð síðan bílvelta á Snæfjallastrandarvegi á Ströndum. Þar voru erlendir ferðamenn á ferð, bifreiðin óökuhæf og ökumaður og farþegi fluttir á Heilsugæslustöðina á Hólmavík til skoðunar. Um minniháttar meiðsl að ræða.
Tuttugu og fjórir ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í liðinni viku á Djúpvegi í nágreni Hólmavíkur og í nágreni Ísafjarðar. Sá sem hraðast ók var mældur á 123 km/klst. þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Einn ökumaður var grunaður um ölvun við akstur. Tveir ökumann kærðir fyrir ólöglega lagningu ökutækja. Þá voru skráningamerki fjarlægð af sjö ökutækjum ýmist vegna vöntunar á aðalskoðun eða vanrækt að færa bifreið til endurskoðunar.
Bæjarhátíðir og skemmtanir voru í umdæminu um liðna helgi og fóru vel fram og án teljandi afskipta lögreglu.