9 Október 2024 15:37

Um klukkan þrjú sl. nótt var lögreglu tilkynnt um líkamsárás í Grafarvogi þar sem hnífi hafði verið beitt.  Lögregla fór þegar á vettvang og hafði töluverðan viðbúnað vegna málsins.  Tveir voru handteknir og hafa þeir verið yfirheyrðir í dag.  Þolandi var með lífshættulega stunguáverka á líkama og var hann fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem gert var að sárum hans. Málsaðilar eru á þrítugs-og fertugsaldri.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.