17 Maí 2023 15:56

Þótt formlegri dagskrá leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu sé lokið er enn verk að vinna hjá lögreglu. Akstur sendinefnda í lögreglufylgd til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli hefur annars gengið vel. Og það sama má segja um umferðina á höfuðborgarsvæðinu almennt. Minnum samt vegfarendur á að fara varlega og sýna líka bæði þolinmæði og tillitssemi. Þegar það er gert gengur öllum betur að komast leiðar sinnar.