17 Maí 2023 17:28

Viðburðaríkir dagar vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu eru senn að baki. Um er að ræða risastórt verkefni, það langstærsta sem íslenska lögreglan hefur staðið frammi fyrir. Vel hefur tekist til og þakkar lögreglan öllum samstarfsaðilum fyrir ánægjulegt samstarf. Ekki síst þakkar hún almenningi fyrir þolinmæði og skilningi gagnvart þeim lokunum sem grípa þurfti til. Eins og við mátti búast urðu umferðartafir hér og þar síðdegis, en umferðin ætti að vera komin í samt lag þegar þetta birtist. Sama á við um miðborgina, en þar hefur verið hafist handa við að aflétta lokunum. Slíkt getur tekið einhverja klukkutíma og eru vegfarendur beðnir um að sýna því biðlund.

Eins og gefur að skilja hefur ekki verið mikið um pásur hjá lögreglumönnum þessa annasömu daga. Það á ekki síst við um lögreglumenn í umferðardeild, en hér hafa þrír þeirra þó náð að tylla sér eitt andartak, svona rétt áður en þeir þurftu að rjúka aftur af stað!