24 Apríl 2007 12:00
Sex innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Farið var inn á þrjú heimili í austurborginni og eitt í Breiðholti en mismiklu var stolið. Lyfjum var m.a. stolið á síðastnefnda staðnum en í austurborginni hurfu ferðatölva og myndavél á einum stað, sparibaukur á öðrum en sýnum mest var þó stolið á þriðja staðnum. Þar söknuðu húsráðendur ýmissa heimilistækja og fatnaðar. Þá var DVD spilara stolið úr bíl í Árbæ og í Grafarvogi var skiptimynt tekin úr öðrum bíl.
Nokkrir einstaklingar voru staðnir að hnupli í verslunum í gær en hinir fingralöngu voru á ýmsum aldri. Tveir karlmenn, annar um fertugt en hinn á þrítugsaldri, voru stöðvaðir í verslunarmiðstöð en þá höfðu þeir tekið hluti ófrjálsri hendi úr nokkrum búðum. Tveir piltar á fjórtánda aldursári voru staðnir að verki í matvöruverslun og hið sama átti við um tvær 8 ára stúlkur sem voru að stela sælgæti í annarri verslun. Þá er karlmaður á fertugsaldri grunaður um að hafa stolið DVD spilara úr sérverslun en athæfið náðist á öryggismyndavél og er mannsins nú leitað.