21 Desember 2012 12:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum. Nokkuð er um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en þjófum er ekkert heilagt og þeir stela jafnvel jólagjöfum ef því er að skipta. Annars eru það einkum GPS-tæki, myndavélar, tölvur og símar sem freista þjófa en þetta verða eigendur eða umráðamenn ökutækja að hafa hugfast og muna að skilja ekki nein verðmæti eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn. Sömuleiðis er rétt að benda á mikilvægi þess að skilja bíla frekar eftir á upplýstum bílastæðum, ef þess er nokkur kostur. Þjófum finnst nefnilega fátt betra en að athafna sig í myrkrinu þar sem ekki sést til þeirra.
Jafnvel jólagjafir fá ekki að vera í friði.
Myndavélar og tölvur freista þjófa.
Bíl lagt á öruggum stað í dagsbirtu.
Er þetta öruggur staður eftir að myrkur er skollið á?