25 September 2023 09:13

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Vefarastræti í Mosfellsbæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vefarastræti í vesturátt, við Varmárveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Vefarastræti er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.