1 Nóvember 2023 09:45

Brot 87 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í austurátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 350 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.