4 Janúar 2024 12:11

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Skipholti í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipholt í vesturátt, að Brautarholti. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 149 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Skipholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.