19 Apríl 2023 13:43

Brot 45 ökumanna voru mynduð í Skipholti í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipholt í vesturátt, að Brautarholti. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 137 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar í Skipholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.