26 Ágúst 2024 10:07
Brot 28 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Víkingsheimilið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 79 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.
Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.