30 Apríl 2019 15:55
Brot 33 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, á móts við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 89 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.
Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.