3 September 2024 09:34

Brot 27 ökumanna voru mynduð í Lönguhlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lönguhlíð í norðurátt, að Mávahlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 148 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Lönguhlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.