20 Október 2023 11:54

Brot 20 ökumanna voru mynduð í Lækjargötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lækjargötu í suðurátt, að Vonarstræti. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 103 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Lækjargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.