30 Ágúst 2023 09:12

Brot 9 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðargerði í austurátt, á móts við Heiðargerði 82. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Heiðargerði er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.