8 Nóvember 2023 16:12

Brot 39 ökumanna voru mynduð í Dugguvogi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dugguvog í suðurátt, að Kuggavogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 109 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Dugguvogi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.