27 September 2023 09:33

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.