14 Nóvember 2024 17:00
Brot 29 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfheima í norðurátt, á móts við Álfheima 19. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.
Vöktun lögreglunnar í Álfheimum er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.