5 Apríl 2023 08:55

Brot 164 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, að Hamrahlíð (skógrækt). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.024 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 147.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.