13 Nóvember 2024 16:05

Brot 122 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Skálatún/Skálahlíð. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fór 671 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í  fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.