12 Júlí 2023 15:04

Brot 62 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Bjarkarholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 760 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.