6 Nóvember 2023 15:38

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Vatnsendavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í norðurátt, við Grundarhvarf. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 318 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.