4 Desember 2023 11:30

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni  klukkustund, eftir hádegi, fóru 422 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.