11 Janúar 2024 16:36

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Snorrabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Snorrabraut í norðurátt, á móts við Mánagötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 263 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 55 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Snorrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.