30 Maí 2024 11:36

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Skúlagötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skúlagötu í vesturátt, að Klapparstíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Skúlagötu er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.