18 Júlí 2024 12:52

Brot 241 ökumanns var myndað á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 12. júlí til miðvikudagsins 17. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á rúmlega fimm sólarhringum fóru 29.816 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 116. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.