23 Maí 2024 10:37

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, að Höfðatúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 728 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.