9 Október 2023 11:10

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, að Höfðatúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 658 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.