6 Mars 2023 15:08

Brot 164 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 2. mars til mánudagsins 6. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á fjórum sólarhringum fóru  19.242 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 111. Sex ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.